Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Atburðadagatal
28
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
Ætlar þú að taka þátt í jólaútvarpi Óðals fm 101,3?
Samfés TV
Kynfræðsluvefurinn
5. mars 2010 04:12

Söngkeppni Samfés Laugardag

Fulltrúar félagsmiðstöðva af Vesturlandi á Söngkeppninni á morgun verða frá Hosiló og Mófó og erum við öll mjög stolt af þeim.

Þeir sem ekki geta farið á svæðið geta samt sem áður horft og hlustað á keppnina í beinni útsendingu á Skjánum og á Rás2

Áfram stelpur vinna þetta...

 

meira...
4. mars 2010 09:06

Samfésferð

Jæja þá er komið að árlegri ferð á Samfésballið.

Þeir sem eru að fara eiga að mæta í Óðal kl. 17.00

Muna að vera búin að borða og koma ekki svöng í ferðina.

Þeir sem gleyma því eða geta ekki fengið sér mat fyrir ferðina þurfa ekki að örvænta því nemendafélagið bíður upp á  samlokur og safa í Óðali til að losna örugglega við yfirliðsvesenið sem getur fylgt svona álagi og troðningi ef menn borða ekki og eru orkulausir.

Kl. 17.30 verður farið yfir reglur í ferðinni og afhending armbanda.

Munið að vera í mjúkum og þægilegum skóm því það er ekki gott að vera í pinnahælum í 4 tíma á parkettinu í höllinni.

Utanyfirfatnaður verður geymdur í rútu og töskur eru bannaðar.

Brot á reglum Samfés ógildir miðann.

Ekki var þátttaka í rútuferðum á söngkeppnina laugardag að þessu sinni en hún er í beinni útsendingu á Sjánum og Rás2

Sjáums kl. 17.00 í Óðali.

ij.  

meira...
18. febrúar 2010 11:58

Vefsjónvarp í Grunnskóla Borgarfjarðar

 

Vefsjónvarp Grunnskóla Borgarfjarðar

Í dag, fimmtudaginn 18. febrúar verður bein útsending á vefsjónvarpi Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Um útsendinguna sjá krakkar í fjölmiðlahópi í vali eldri nemenda.

 

Þar má heyra fréttir úr skólalífinu, viðtöl, myndbönd og leiknar auglýsingar.

Útsending hefst kl. 13:30 á slóðinni, http://www.gbf.is/tv

Það er Nepal, sem varpar efninu út.

meira...
16. febrúar 2010 04:19

Öskudagur í Óðali

Öskudagsgleði fer að vanda fram í Óðali á morgun Öskudag.

Stjórn NFGB vinnur nú að undirbúningi þessa skemmtilega dags þar sem börnin hittast og skoða skrautlega búninga hvors annars og stigin verður léttur dans í tilefni dagsins.

 

Aðgangur er ókeypis inn og sjoppan verður opin.

Kl. 16.00 - 17.30 Öskudagsgleði 1. - 3 bekkur

( Yngri börn mega líka mæta )

Kl. 17.30 - 19.00  Öskudagsgleði 3 - 7. bekkur.

 

Kl. 20.00 Forsala á Samféshátíðina í Reykjavík 5.-6. mars n.k.

Muna eftir að taka foreldrabréf með sér.

Óðali var úthlutað 60 miðum - fyrstir koma fyrstir fá miða.

Stjórn NFGB

meira...
28. janúar 2010 02:22

Unglingar úr Borgarbyggð sigruðu Söngkeppni Vesturlands.

Söngkeppni félagsmiðstöðva á Vesturlandi var haldin í félagsmiðstöðinni Grundarfirði í gær miðvikudag. Þar mættu fulltrúar félagsmiðstöðva af Vesturlandi til að keppa um tvö sæti í Söngkeppni Samfés sem verður á stóra sviðinu í Laugardalshöll í mars. Keppni þessi var sérlega vel heppnuð og frábær atriði flutt enda forkeppnir búnar í félagsmiðstöðunum á Vesturlandi og sigurvegarar þeirra þarna saman komnir til að skera úr um það hvaða tvö atriði færu áfram á sjálfa Samfés landskeppnina. 

Það voru unglingar úr dreifbýlisfélagsmiðstöðunum Hósiló og Mófó í Borgarbyggð sem slógu í gegn að þessu sinni þegar Steinunn Þorvaldsdóttir frá Hjarðarholti, nemandi í 10. bekk Varmalandsskóla sigraði í keppninni en hún söng lag úr teiknimyndinni Anastasía.

Í örðu sæti urðu þær Sigrún Rós Helgadóttir, Klara Sveinbjörnsdóttir, Íris Ragnarsdóttir Pedersen og Elsa María Vignisdóttur úr Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum sem fluttu lagið Black horse and the Cherry tree.  Það voru systurnar Klara og Kristrún Sveinbjörnsdætur sem snöruðu textanum yfir á íslensku og heitir það nú "Heil án þín."

Unglingar úr félagsmiðstöðinni Óðal fluttu að sjálfsögðu einnig þarna sín atriði sem vöktu athygli fyrir „live“ undirspil og góða raddsetningu.

 

Sem sagt það verða unglingarnir úr Borgarbyggð sem verða fulltrúar Vesturlands á Samfés hátíðinni þann 6. mars í Laugardalshöll þar sem söngfuglarnir okkar þurfa að syngja fyrir framan 5.000 áhorfendur. 

Já unglingarnir okkar eru alltaf að gera góða hluti.

Innilega til hamingju.

ij

 

meira...
22. janúar 2010 01:03

Söngkeppni Vesturlands

Jæja þá er glæsilegri söngvakeppni Óðals lokið og var hún öll frábær skemmtun. Það voru þær Sigríður Ásta, Díana, Hera og Hanna Ágústa sem fóru með sigur í keppninni og verða þær fulltrúar okkar í Vesturlandskeppninni í Grundarfirði í næstu viku.

 

Sætaferð verður farinn miðvikudaginn 27, jan. frá Óðali kl. 16.00.

Aðeins 40 miðar eru í boði - fyrstir koma fyrstir fá.

Miðaverð 2.000 kr rúta og miði.

Greiða þarf við skráningu hjá Sissa í Óðali.

Stjórn NFGB 

meira...
19. janúar 2010 02:12

Söngvakeppni Óðals 2010

Vesturlandskeppnin í fyrra var haldin á Akranesi
Söngvakeppni Óðal fer fram miðvikudagskvöldið 20. janúar n.k. kl. 20.00

Æfingar hafa staðið yfir í síðustu viku og þessari og næsta víst að þetta verður skemmtilegt söngkvöld í Óðali þar sem unglinarnir keppa um að komast í Vesturlandskeppnina sem haldin verður eftir viku í Grundarfirði.  Þrátt fyrir keppnisfyrirkomulagið þá er það samt aðalmálið að vera með og taka þátt í skemmtilegu starfi sem fram fer í félagsmiðstöðinni.

 

meira...
12. janúar 2010 09:26

Starfið aftur af stað á nýju ári

Gleðilegt ár.

 

Félagsmiðstöðin verður opin sem hér segir í þessari viku 11 -15 jan. 2010:

Athugið breytta opnun vegna þess að Sissi er fararstjóri með Reykjaskólaförum.

 

Þriðjudagskvöld 12. jan.

Spilakvöld frá kl. 20.00 – 22.00 - Mætum öll á spilakvöld í Óðali

Endilega tökum skemmtileg spil með okkur í Óðal.

( Partý & Co  - Alias  - Trivial Pursuit  og fleiri spil sem þið eigið )

 

Miðvikudagur 13. jan. 

16.00 – 18.00 - Karokee æfingar 8. – 10. b. hefjast ! 

Mætum, veljum og skráum inn atriði og æfum fyrir söngvakeppni Óðals sem fer svo fram í næstu viku.

·       Ath. Sama lag verður aðeins flutt einu sinni í keppninni

–       fyrstur skráir– fyrstur fær eins og í Samfés. 

 

Fimmtudagskvöldið 14. jan.

Vöfflukvöld kl. 20.00 – 22.00 

Mætum öll á vöfflukvöld og höfum það notalegt í Óðali.

 

Föstudagskvöldið 15. jan. 

Fyrsta diskótek ársins 2010 fyrir 8.-10.b.

Mætum öll á diskótek og fögnum saman nýju ári.

 

Framundan:

·        7. bekkur og Sissi eru í skólabúðum á Reykjaskóla þessa viku.

·        Skólahreysti – keppni Grunnskóla Borgarness miðvikudag 13. jan.

·        Söngvakeppni Óðals miðvikudaginn 20. jan. ( 8. – 10. b )

·        Söngvakeppni Félagsm. á Vesturlandi í enda jan.

·        Söngvakeppni yngri í febrúar. ( 5 – 7. bekkur )

·        Skíðaferðalag 8. bekkjar í febrúar.

 

Félagsmiðstöðin Óðal – Nemendafélaga G.B.

meira...
Stíll ´09

Opnunartímar:

 

Alla virka daga frá

kl. 14:00 - 18:00

Miðvikudagskvöld frá

kl. 20:00 - 22:00

 

 

Starfsmaður:

Sigurþór Kristjánsson
sissi@borgarbyggd.is

 


Formaður NFGB:

Atli Aðalsteinsson
atli_fatli@hotmail.com
 

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi:

Indriði Jósafatsson
indridi@borgarbyggd.is